jólin, jólin...

jæja, búin að hafa það hrikalega gott um jólin. ætla að gera smá veruleikatékk á morgun og fara í vinnuna í tja, hvað á ég að segja; tvo daga í röð og fara svo aftur í frí! bara skemmtilegt. eiginlega ættum við að snú vinnuvikunni við: vinna í tvo daga og vera svo í fríi hina fimm daga vikunnar. það kæmi allavega mikið betur út fyrir fjölskyldulíf okkar sem erum uppi á þessum síðustu og verstu tímum..er það ekki? kannski myndu margir actually KYNNAST börnunum sínum, grafa upp gamlar ljósmyndir síðan þau voru lítil og kannski heyra sögur af því hvernig hinar ýmsustu upplifandir í þeirra lífi urðu til. fróðlegt væri það heillin. og sennilega mjög ógnvænleg reynsla fyrir mörg okkar. ég heyrði í kvöld sagt í öfundartón, að mín fjölskylda væri svo skemmtileg! mér sem finnst hún einmitt stundum geta verið drepleiðinleg en yfirleitt er ég hæstánægð með hana :) við erum dugleg að hittast við systkinin, spila hin ýmsu spil, fá okkur kannski bjór með eða hvítt eða rautt. pabbi og mamma sleppa yfirleitt að spila, fá sér samt í tánna með okkur... ;)

nei annars, takk fyrir jólin og megi þau veita öllum gleði og frið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ hæ fallegu mæðgur og pjakkarakki

gleðilega hátíð og ég vona að þið komið saddar, úthvíldar og glaðar undan jólum (ja, mér finnst það nú á færslunni)

 af mér er allt gott, komin aftur í byen eftir mikla lambakjétshátíð, að ógleymdum mömmukökunum.  hvernig væri nú að stefna að hittingi á nýju ári, fá sér kannski eitt glas af rauðu, jafnvel setjast í hnakk og syngja smá!!! 

 knúsar inn í bæinn...

hulda dögg

e.s. hefur fjölgaði í familínzki... er kominn kizulóra???  eru þið bara farnar í búskapinn þið mæðgur?  er kannski komin geit í garðinn og lömb í geymsluna?

hulda dögg (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.