Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Forsíða jólablaðs Eiðfaxa

MSH og KuldiEftir vel heppnaða myndatöku um síðustu helgi, var ákveðið að hafa þau Maríönnu Sól og Kulda á forsíðu jólablaðs Eiðfaxa þessi jólin. Forsíðan lítur því svona út og er blaðið væntanlegt úr prentsmiðjunni í dag.

Sæt saman og jólaleg jólaforsíða Cool

Kíkið líka í myndaalbúmið 'Jólalegar myndir' hér til að sjá fleiri myndir úr þessari myndatöku.


Þrír fílar lögðu af stað í leiðangur...

Kuldi, Maríanna Sól og UglaVið mæðgur skelltum okkur í sveitaferð á sunnudaginn. Tilgangurinn var sá að Maríanna Sól hitti pabba sinn, og að auki höfðum við platað hann til að koma með okkur í myndaleiðangur. Hreiðar slóst í hópinn og Kuldi höfðingi líka.

Já, ég ætlaði að freista þess að ná skemmtilegum myndum af Maríönnu Sól og Kulda frá Grímsstöðum, til þess að nota á forsíðu jólablaðs Eiðfaxa. Margar skemmtilegar myndir komu út úr þessu skemmtilega ferðalagi okkar og nokkrar eru nú þegar komnar inná myndasíðuna. Eins og sjá má tróð Uglan okkar sér með á nokkrar...

Grin


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband