Þrír fílar lögðu af stað í leiðangur...

Kuldi, Maríanna Sól og UglaVið mæðgur skelltum okkur í sveitaferð á sunnudaginn. Tilgangurinn var sá að Maríanna Sól hitti pabba sinn, og að auki höfðum við platað hann til að koma með okkur í myndaleiðangur. Hreiðar slóst í hópinn og Kuldi höfðingi líka.

Já, ég ætlaði að freista þess að ná skemmtilegum myndum af Maríönnu Sól og Kulda frá Grímsstöðum, til þess að nota á forsíðu jólablaðs Eiðfaxa. Margar skemmtilegar myndir komu út úr þessu skemmtilega ferðalagi okkar og nokkrar eru nú þegar komnar inná myndasíðuna. Eins og sjá má tróð Uglan okkar sér með á nokkrar...

Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ mæðgur ;-)

Gaman að heimsækja síðuna ykkar.

Voðalega ert þú fín á hestbaki Maríanna og Ugla er líka voða mikill knapi.

Hesturinn er líka ekkert smá fallegur svona skjanna hvítur og fangreistur.

Kveðjur frá Örnu hundakerlingu

Gjósku Arna (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.